lífið á herningvej


föstudagur, nóvember 22, 2002  

jam - fullt af dögum liðnir síðan við skrifuðum síðast og í raun og veru ekki mikið búið að gerast.....ég lifi og hrærist í skólanum og Raggi lifir og hrærist hér fyrir framan tölvuna, reynir að læra og undirbýr heimför...prófin sko prófin sko. En allavegana Múm tónleikarnir voru æði pæði...komu mér persónulega á óvart - það fyndna var líka að Ásthildur (sem þið flest kannist við) var að synga með þeim. Jú, við vissum að systur hennar (báðar eða ein eða allar) eru í hljómsveitinni en þetta fannst mér frekar sniðugt...og hún söng eins og engill ásamt einni systurinni (veit ekkert hvorri)- jæja jæja..... Eftir tónleikana heilsuðum við Raggi og Sara svo upp á Gunna, Eika og Ásthildi(djöfull erum við að namedroppa núna).....frekar fyndið þar sem ég var einmitt að lesa lýsingu Funa og Siggu á grúppíubröltinu þeirra - við vorum ekki skárri ...híhíhí.... Á tónleikunum var alveg fullt hús og miklu fleiri en kvöldið áður þegar Supergrass tróð upp....veit þá ekki alveg hvort fullyrðingar Ragga um tónlistarsmekk dana hér fyrir neðan eiga við eða ekki ???? neiiij...

...Raggi fór svo á enn aðra tónleika á miðvikudaginn (ég barðist við módelið mitt á meðan) - De la soul - skilst að það hafi verið mjög svo ánægulegt - .....tjékkið á myndum hjá Helgu og Halla-

en nú er föstudagur og svo er laugardagur og svo er sunnudagur og svo mánudagur og svo kemur lífið aftur - því ég skila verkefninu mínu á þriðjudaginn .....

back to work.....

árný

posted by Arny | 22:38


mánudagur, nóvember 18, 2002  

Fólk er ekki alveg sátt við að þurfa skrifa comment á skrýtnum stöðum. Vonandi er þetta betra núna!

posted by Arny | 11:43
myndirnar okkar:
Myndir
Myndir í öðru
Myndir í þriðja
Myndir í fjórða
fólkið:
Halli og Helga
Herborg
Auður
Tinna
Ýrr
María bókmenntafræðingur
Sars
Brynja og Trausti
Svala
Steinunn og Atli flugmaður
Bjórlistinn
Snatak
Jan Teigen
Maja
Arnar og Dröfn
Guffi
Dabbi Hedtoft
85 party
annað skothelt:
árnýjar skóli
ragga skóli
morgunblaðið góða
politiken
baggalútur
archives
archives
Weblog Commenting by HaloScan.com